Alþingi samþykkti í desember að framlengja aftur heimild til að endurgreiða að fullu þann virðisaukaskatt sem byggjendur íbúðar- og frístundarhúsnæðis greiða af vinnu manna á byggingarstað og af vinnu við endurbætur eða viðhald húsnæðis. Átakið „Allir vinna“ hefur því verið framlengt til 1. janúar 2013.
Í fréttatilkynningu segir af þessu tilefni hafi stjórnvöld í samstarfi við SVÞ-Samtök verslunar og þjónustu, VR og Samtök iðnaðarins ákveðið að minna á átakið með auglýsingum sem munu birtast á næstu vikum og mánuðum. Verkefnisstjóri átaksins er Guðmundur Halldór Björnsson alþjóðamarkaðsfræðingur.
Nánari upplýsingar er hægt á nálgast á vefsvæði átaksins, allirvinna.is