Í tengslum við frétt Viðskiptablaðsins í dag undir fyrirsögninni „Rekstur Atlanta seldur á 0 krónur“ er eftirfarandi athugasemdum komið á framfæri:

– Í október 2007 var ákveðið að skipta flugfélaginu Air Atlanta Icelandic upp í tvö félög, annars vegar flugfélagið Air Atlanta Icelandic og hins vegar flugvélaeignarhaldsfélagið Northern Lights Leasing sem tók yfir flugflota Air Atlanta Icelandic.

– Í október 2007 voru uppi áform um að selja félögin í sitthvoru lagi, en ekki rættist úr þeim áformum þannig að gengið var til samninga við lykilstjórnendur Air Atlanta Icelandic um kaup á báðum félögunum í desember 2007.

– Lykilstjórnendur Air Atlanta Icelandic gengu frá kaupum á 100% hlutafjár í félögunum Air Atlanta Icelandic og Northern Light Leasing við Hf. Eimskipafélag Íslands á árslok 2007.

– Endanlegt kaupverð félaganna var $63 miljónir. Það sem af er árinu 2008 hafa $54 miljónir eða um 86% af kaupverðinu verið greiddar til Hf. Eimskipafélags Íslands.

– Við kaupin á félögunum var Hf. Eimskipafélag Íslands í ábyrgð fyrir $285 miljónum vegna Air Atlanta og Northern Light Leasing. Það sem af er árinu 2008 hefur ábyrgðin verið lækkuð um $100 miljónir, og er því nú um $185 miljónir.

Ástæða þykir til að benda á að Hf. Eimskipafélag Íslands hefur ekki þurft að afskrifa neitt í bókum félagsins vegna sölunnar á Air Atlanta Icelandic og Northern Light Leasing. Umtalsverður árangur hefur náðst það sem af er árinu 2008, undir krefjandi aðstæðum í flugiðnaði, þar sem 87% af kaupverði félaganna hefur verið greitt og ábyrgðir lækkaðar um $100 miljónir.

Unnið er að því að lækka enn frekar ábyrgðir Hf. Eimskipafélags Íslands vegna Air Atlanta Icelandic og Northern Light Leasing, en Hf. Eimskipafélag Ísland er með veð í öllum flugvélum Northern Light Leasing.

Leitað verður áfram eftir tækifærum til að selja flugvélar Northern Light Leasing til að minnka enn frekar ábyrgðir Hf. Eimskipafélags Íslands. Á meðan á því ferli stendur eru flugvélar Northern Light Leasing í tekjuskapandi verkefnum.

Lykilstjórnendur Air Atlanta Icelandic sem stóðu að kaupunum á Air Atlanta Icelandic og Northern Light Leasing harma þær rangfærslur sem að koma fram í grein Viðskiptablaðsins um sölu félaganna, sem gefa ranga og neikvæða mynd af umræddri sölu.

Hannes Hilmarsson, forstjóri Air Atlanta

Athugasemdir Viðskiptablaðsins

Af umfjöllun Viðskiptablaðins í gær var ljóst að upplýsingarnar voru fengnar úr bréfi þáverandi forstjóra Eimskipafélagsins dagsettu 27. nóvember 2007. Ekki var dregin upp önnur mynd en þar kom fram, m.a. að rekstur AAI hafi verið seldur fyrir „0 USD til stjórnenda AAI“.

Það sem flækir málið er að Air Atlanta var skipt upp í tvö félög, annars vegar um rekstur, AAI, og hins vegar um eignarhald á flugvélum, NLL.

Í bréfinu og í frétt Viðskiptablaðsins í gær kom þetta fram. Jafnframt sagði að um helmingur NLL hefði verið seldur fyrir 30 milljónir dala og að hinn helmingurinn væri metinn á sömu fjárhæð. Samtals eru þetta 60 milljónir dala.

Seinni helmingurinn var greinilega seldur skömmu eftir að bréfið var ritað og samkvæmt upplýsingum forstjóra Air Atlanta sem birtast hér að ofan má sjá að bæði félögin saman, reksturinn í AAI og eignirnar í NLL, hafi verið seld í árslok 2007 fyrir 63 milljónir dala. Það er ekki fjarri þeirri fjárhæð sem fram kom í Viðskiptablaðinu að hefði verið verðmæti NLL eins, án AII.

Frétt Viðskiptablaðsins gaf þess vegna eins réttatlaa mynd af sölu AAI og NLL og kostur var á út frá þeim gögnum sem blaðið bjó yfir.

Viðskiptablaðið getur ekki skýrt þá 3 milljóna dala skekkju sem um ræðir en hún kann að stafa af þvi´að bréfið er ritað áður en endanleg sala beggja félaga fer fram.

Ritstjóri