Reykjavíkurborg auglýsti þann 14. febrúar síðastliðinn starf borgarritara laust til umsóknar, eftir að Stefán Eiríksson sagði stöðu sinni lausri til að taka við sem útvarpsstjóri. Umsóknarfrestur var til og með 16.mars síðastliðinn.

Átján sóttu um starf borgarritara, þar á meðal Jón Þór Sturluson fyrrverandi aðstoðarforstjóri Fjármálaeftirlitsins, Margrét Hallgrímsdóttir Þjóðminjavörður, Óli Örn Eiríksson deildarstjóri atvinnuþróunar hjá Reykjavíkurborg, Þorsteinn Gunnarsson sveitarstjóri Skútustaðahrepps, en var áður í stjórnsýslu Grindavíkurbæjar, og Kristín Þorsteinsdóttir fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins.

Hæfnisnefnd borgarráðs mun starfa með Intellecta við ráðninguna, en hana skipa Regína Ásvaldsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar sem jafnframt er formaður, Ásta Bjarnadóttir, mannauðsstjóri Landspítalans og Gylfi Magnússon, dósent við Háskóla Íslands.

Umsækjendur um starf borgarritara eru:

  • Artis Arturs Freimanis – Vélstjóri
  • Árdís Rut Hlífardótir – Framkvæmdastjóri
  • Birna Ágústsdóttir – Skrifstofustjóri
  • Elín Björg Ragnarsdóttir – Verkefnastjóri
  • Friðjón Már Guðjónsson – Bókhaldsfulltrúi
  • Guðbjörg Ómarsdóttir – Gæðastjóri
  • Gunnsteinn R. Ómarsson – Lánastjóri
  • Hans Benjamínsson – Aðstoðarmaður framkvæmdastjóra
  • Jón Þór Sturluson – Dósent
  • Jónas Skúlason – Skrifstofustjóri
  • Kristín Þorsteinsdóttir – MBA
  • Margrét Hallgrímsdóttir – Þjóðminjavörður
  • Óli Örn Eiríksson – Deildarstjóri
  • Ólöf Hildur Gísladóttir – Lögfræðingur
  • Salvör Sigríður Jónsdóttir – Félagsliði
  • Sólveig Dagmar Þórisdóttir – Framkvæmdastjóri
  • Steinunn Hólm Guðbjartsdóttir – Lögfræðingur
  • Þorsteinn Gunnarsson – Sveitarstjóri

Nú fer í gang ráðningarferli sem Intellecta heldur utan um í samvinnu við hæfnisnefnd sem borgarráð skipaði. Hæfnisnefndin er skipuð í samræmi við b. lið 3. gr. reglna um ráðningu borgarráðs í æðstu stjórnendastöður hjá Reykjavíkurborgar, sem eru frá 24. janúar 2019.