Atkvæðagreiðslur eru hafnar hjá fjölda aðildarfélaga ASÍ vegna nýrra kjarasamninga sem voru undirritaðir fyrir jól. Öllum kosningabærum félagsmönnum á að hafa borist bréf með upplýsingum um samninginn og og lykilorð inn á rafrænan atkvæðaseðil.

Kosning innan Landssambands íslenskra verslunarmanna og VR stendur yfir til hádegis mánudaginn 20. janúar samkvæmt upplýsingum á vefsíðum samtakanna.