Stjórn færeyska flugfélagsins Atlantic Airways hefur ákveðið að selja eina af fimm flugvélum félagsins. Kaupandinn er kanadíska flugfélagið North Cariboo. Vélin er af gerðinni Avro RJ-85. Ekki er búist við að salan hafi áhrif á uppgjör flugfélagsins.

Fram kemur í tilkynningu frá Atlantic Airways að flugfélagið reki þrjár Aribus 319-vélar og eina Avro RJ-100-vél auk tveggja þyrla.

Hlutabréf Atlantic Airways eru skráð í Kauphöllina.