Hagar fá strax sess með sex veltumestu félögunum á markaði í Úrvalsvísitölunni um áramót. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöllinni.

Úrvalsvísitalan er endurskoðuð tvisvar á ári og tekur ný gildi við opnun markaða 2. janúar á næsta ári.

Í Úrvalsvísitölunni nú eru hlutabréf færeysku fyrirtækjanna Atlantic Petroleum, Atlantic Airways og BankNordik ásamt Icelandair, Marel og Össuri. Á nýju ári verða bréf færeyska flugfélagsins Atlantic Airways tekin úr vísitölunni í skiptum fyrir Haga.