Á Vegvísi Landsbankans er greint frá því að Atlantic Petroleum hafi hækkað mest allra félaga í Kauphöllinni í dag. Félagið var skráð í Kauphöll Íslands í júní árið 2005 á genginu 526, félagið hefur því hækkað um 212% frá skráningu. Lítil velta hefur verið með bréf félagsins hingað til og ákváðu stjórnendur þess því einnig að skrá það í Kauphöllina í Kaupmannahöfn, félagið var skráð þar í október í fyrra.

Lokagengi félagsins í dagslok var 1.723.