Nýir hlutir í færeyska olíufélaginu Atlantic Petroleum að upphæð 1.500.973 kr. verða teknir til viðskipta hjá Kauphöllinni á morgun, 3. nóvember 2009.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöllinni en skráð hlutafé Atlantic Petroleum frá og með 3. nóvember 2009 verður þá 262.670.300 danskar krónur að nafnvirði.