Kauphöll Íslands.
Kauphöll Íslands.
© Aðrir ljósmyndarar (VB MYND)
Hlutabréf í Atlantic Petroleum lækkuðu um 17,4% í viðskiptum í Kauphöll Íslands í dag. Heildarfjöldi viðskipta var fimm talsins og var veltan um 4,8 milljónir króna. Úrvalsvísitalan lækkað um 1,69% í viðskiptum í dag.

Marel lækkaði um 0,8% en velta með bréf félagsins var um 18,6 milljónir króna. Gengi bréfa Icelandair Group hækkaði nokkuð, um 2,3%. Af félögum í kauphöll voru mest viðskipti með bréf Icelandair. Velta með bréf félagsins nam alls um 108,5 milljónum.