Atlantsolía hefur fengið vilyrði fyrir lóð að Fossnesi 2 á Selfossi fyrir nýja bensínstöð með sjálfsafgreiðslu. Verður það 10 bensínstöð félagsins.

Atlantsolía er nú að reisa sína níund stöð við Búðakór í Kópavogi. Gert er ráð fyrir að undirbúningsferli og bygging stöðvarinnar á Selfossi taki um sex mánuði.