Bæjarráð Akranes hefur fjallað um umsókn Atlantsolíu undir bensínstöð á horni Þjóðbrautar og Innnesvegar. Fyrirtækið hefur hug á rekstri sjálfsafgreiðslustöðvar fyrir bensín og olíu sem opin yrði allan sólarhringinn, allt árið um kring, ásamt því að byggja upp frekari þjónustu á lóðinni.

Í ljósi þess að deiliskipulag fyrir lóðina liggur ekki fyrir gat bæjarráð ekki orðið við erindinu, en mun hins vegar auglýsa lóðina lausa til umsóknar þegar deiliskipulag liggur fyrir ásamt öðrum lóðum innan deiliskipulagsins. Bæjarráð lýsti jafnframt yfir ánægju með áhuga fyrirtækisins á aðstöðu á Akranesi og er nú þegar reiðubúið til viðræðna um aðrar lóðir fyrir Atlantsolíu á svæðinu við Þjóðbraut hafi fyrirtækið áhuga.