Atlantsolía hyggst opna nýja bensínstöð að Bíldshöfða 20 á lóð Húsgagnahallarinnar á mótum Höfðabakka og Bíldshöfða. Í framtíðinni mun bensínstöðin verða eitt helsta samkeppnisafl fyrirtækisins en henni er ætlað að þjóna Grafarvogs- og Grafarholtsbúum ásamt þeim íbúum Mosfellsbæjar sem sækja vinnu til borgarinnar.

Það eru Verktakar Magna sem sjá munu um verklegar framkvæmdir en áætlað er að þeim ljúki fyrir áramót. Líkt og við aðrar systurstöðvar verða notaðar sérhannaðar forsteyptar einingar undir beníndælur sem er nýlunda hér á landi. Ekki þarf að slá upp mótum eða bíða frostleysis til að hægt sé að steypa.