Atlantsskip hefur gert samkomulag við Icelandair Cargo, Bláfugl og Iceland Express og býður félagið viðskiptavinum sínum að flytja vörur í flugfrakt, segir í tilkynningu frá félaginu.

?Þar með geta Atlantsskip boðið viðskiptavinum fyrirtækisins heildstæða flutningsþjónustu hvaðan sem er og hvert sem er í heiminum hvort sem um flug- eða sjóflutninga er að ræða. Er þetta í takt við þá stefnu Atlantsskipa að bjóða aukið og þéttara þjónustuframboð sem liggur vel að þeirri þjónustu sem Atlantsskip hefur verið að bjóða undanfarin ár," segir í tilkynningu frá félaginu.

Atlantsskip bjóða upp á vikulegar siglingar til og frá Evrópu en siglingar á 28 daga fresti til og frá Ameríku. Einnig bjóða Atlantsskip upp á reglulegar flugsendingar til og frá öllum heimshornum.