Atli Gíslason og Lilja Mósesdóttir hafa boðað til blaðamannafundar í dag vegna úrsagnar úr þingflokki Vinstri Grænna.

Í skeyti til fjölmiðla eru ástæður úrsagnar ekki gefnar upp. Blaðamannafundurinn verður haldinn í Alþingishúsinu klukkan 11.30.

Eftir úrsögn Atla og Lilju telur stjórnarmeirihluti VG og Samfylkingar 33 þingmenn.