Nýlega óskaði Atli Örn Jónsson, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs, eftir að láta af störfum hjá Byr sparisjóði.

Í tilkynningu frá Byr kemur fram að samkomulag hafi orðið um að hann láti af störfum hjá sparisjóðnum eftir daginn í dag.

Þá verða viðskiptabankasvið Byrs sparisjóðs og S24 sameinuð í eina starfseiningu og mun Sæmundur Benediktsson verða framkvæmdastjóri hennar hjá sparisjóðnum en hann hefur verið framkvæmdastjóri S24 síðan 1999.