Evran kostar nú tæpar 144 krónur og hefur ekki verið ódýrari síðan í septemberlok í fyrra. Bandaríkjadollar kostar 114 krónur en hann fór lægst í 111 krónur fyrir rúmri viku síðan.

Dollarinn hefur hækkað verulega gagnvart evrunni undanfarna viku, sem skýrir ólíka þróun þessara tveggja helstu mynta heims gagnvart krónu.

Þetta kemur fram í Morgunkorni Glitnis en krónan heldur áfram að sækja í sig veðrið og er gengi hennar nú hærra gagnvart flestum helstu gjaldmiðlum en verið hefur frá bankahruninu í október.

Í Morgunkorni kemur fram að gærdagurinn hafi verið hagfelldur íslensku krónunni og styrktist hún um 1,5% ef miðað er við gengisvísitölu. Gagnvart evru var styrkingin raunar ríflega 2%, enda lækkaði gengi evru talsvert gagnvart öðrum gjaldmiðlum í gær.

„Óhætt er að segja að áætlun íslenskra yfirvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) um að ná stöðugleika í gengi krónu og styrkja hana, m.a. með takmörkunum á fjármagnsflæði, inngripum á gjaldeyrismarkaði og háum innlendum vöxtum, hafi hrokkið í gírinn eftir nokkuð brösuglega byrjun í desember,“ segir í Morgunkorni.

Þannig hafi krónan styrkst um 11% gagnvart helstu viðskiptamyntum í janúar og það sem af er febrúar nemur styrkingin hálfu öðru prósentustigi.

Greining Glitnis segir árangurinn gagnvart evru vera enn betri, en miðað er við gengi krónu gagnvart evru í aðgerðaráætluninni. Verð evru í krónum lækkaði þannig um rúm 17% í janúar og hefur til viðbótar lækkað um tæplega 2% í febrúar.

Í Morgunkorni kemur fram að innflutningur af evrusvæði nemur u.þ.b. þriðjungi alls vöruinnflutnings Íslendinga og skiptir því gengisþróun evru gagnvart helstu myntum töluverðu fyrir verðbólguþrýsting hér á landi.

Sjá nánar Morgunkorn Glitnis.