Ráðgjafarfyrirtækið Aton og auglýsingastofan Jónsson & Le'macks hafa nú sameinast undir nafninu Aton.JL, en greint er frá þessu í fréttatilkynningu. Þar segir að með samrunanum verði til þekkingarfyrirtæki af nýrri tegund, sérhæft samskiptafélag, sem veiti ráðgjöf á sviði samskipta og stefnumótunar.

„Nýja félagið gerir okkur kleift að þjónusta viðskiptavini okkar betur og á sama tíma mæta þörf sem við höfum orðið vör við á markaðnum. Almenningur og fyrirtæki gera kröfu um að upplýsingaflæði sé stöðugt. Því mun sameining þessara sterku félaga gera það að verkum að fyrirtæki, félög og stofnanir geti leitað til eins samskiptafélags til að ná sínum markmiðum," segir Ingvar Sverrisson, framkvæmdastjóri Aton.JL, í tilkynningunni.

„Við lítum á sameininguna sem rökrétt og spennandi skref. Jónsson & Le'macks hefur á síðustu misserum verið að þróast úr því að vera hefðbundin auglýsingastofa í að sinna ráðgjöf og skipulagðri upplýsingagjöf. Með því að sameinast Aton verður til mjög öflugt samskiptafélag sem opnar viðskiptavinum ný tækifæri," er jafnframt haft eftir Agnari Tr. Lemacks, stjórnarformanni Aton.JL í tilkynningunni.

Starfsmenn Aton.JL verða með sameiningunni 42 talsins, 30 í Reykjavík og 12 í Belgrad í Serbíu. Framkvæmdastjóri hins nýja félags verður Ingvar Sverrisson sem er jafnframt eigandi ásamt Agnari Tr. Lemacks, stjórnarformanni, Dr. Hugin Frey Þorsteinssyni, ráðgjafa og Viggó Erni Jónssyni, ráðgjafa. Fyrirtækið er til húsa að Laugavegi 26.