Fjárfestingarfélagið Atorka hf hefur í dag eignast rúm 50% eignarhlut í Sæplasti hf. Viðskiptin með hlutabréf í Sæplasti hf. voru á genginu 5,5 og var greitt fyrir hlutina með hlutabréfum í Fjárfestingarfélaginu Atorku hf. á genginu 4,6. Fjárfestingarfélagið Atorka mun á næstu vikum gera öðrum hluthöfum Sæplasts tilboð á sömu kjörum. Atorka mun nota eigin hluti í skiptum fyrir bréf í Sæplasti, hlutafé Atorku verður ekki aukið vegna þessarar yfirtöku.

Bréf Sæplasts hafa hækkað um 3,77% það sem af er degi.