Tilkynnt var í dag að Atorka hafi keypt 300.000 hluti í Amiad Filtration Systems en fyrir átti Atorka rúmlega 2 milljón hluti. Frá þessu er greint í Vegvísi Landsbankas.

Eftir þessi kaup á Atorka yfir 12% í félaginu og er stærsti hluthafi félagsins en næst stærsti hluthafinn á um 2,5% hlutafjár. Markaðsvirði heildarhlutarins er rúmlega 800 milljónir kr.