Stjórn Atorku Group hf. samþykkti þann 6. janúar sl. að nýta heimild sína samkvæmt samþykktum félagsins til að hækka hlutafé þess um allt að kr. 600.000.000 að nafnverði með útgáfu nýrra hluta, segir í tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar.

Verða hinir nýju hlutir afhentir í skiptum fyrir hluti í Jarðborunum hf. í samræmi við yfirtökutilboð Atorku Group hf. í hluti í Jarðborunum hf., dags. 9. desember 2005.