Til að setja fjárhagslega endurskipulagningu Atorku í lögformlegt ferli hefur stjórn Atorku ákveðið að óska eftir greiðslustöðvun meðan unnið er að ítarlegum tillögum að framtíð félagsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Atorku í morgun en félaginu hefur þegar verið veitt heimild til greiðslustöðvunar. Undanfarna mánuði hefur Atorka unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins í samvinnu við helstu lánardrottna.

Í tilkynningunni kemur fram að ferlið miðar að því að tryggja jafna hagsmuni allra lánardrottna og stjórn og stjórnendur Atorku stefni að því að leggja fram endanlegar tillögur og samninga við lánardrottna á næstu vikum.

„Undanfarin ár hefur Atorka byggt upp eignarhluti í alþjóðlegum rekstrarfélögum og unnið að uppbyggingu þeirra sem leiðandi hluthafi í nánu samstarfi við stjórnendur félaganna,“ segir í tilkynningunni.

„Stærstur hluti eigna félagsins er utan Íslands. Fyrir liggur að áætlað markaðsverð skráðra og óskráðra eigna félagsins hefur lækkað umtalsvert á síðustu misserum vegna samdráttar í efnahagslífinu. Undirliggjandi rekstur félaganna er þó í flestum tilvikum stöðugur miðað við ríkjandi ástand.“

Þá kemur fram að neikvæð þróun á mörkuðum samhliða umróti og óvissu í tengslum við fall helstu íslensku fjármálastofnana hafi kallað á viðbrögð af hálfu félagsins til að mæta breyttum aðstæðum.

Fram kemur í tilkynningunni að liður í fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins var að fá PricewaterhouseCoopers (PWC)í Danmörku til að leggja heildstætt mat á virði eignasafns Atorku og líklega þróun þess á næstu árum.

„Fyrstu niðurstöður þessarar vinnu liggja nú fyrir og þær staðfesta að rökrétt er að vinna markvisst með eignir Atorku næstu ár í þágu félagsins og lánardrottna, enda þótt eiginfjárstaða félagsins hafi þróast yfir í neikvæða stöðu,“ segir í tilkynningunni.

„Atorka stefnir að því að því að kynna helstu niðurstöður úr skýrslu PWC fyrir lánardrottnum innan tveggja vikna í tengslum við hugmyndir um fyrirkomulag fjárhagslegrar endurskipulagningar.“