Uppgjör Atorku Group hf. fyrir árið 2008 mun ekki verða birt í lok apríl eins og áður hefur verið tilkynnt um.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Atorku en þar er greint frá því að á grundvelli laga um verðbréfaviðskipti er félögum sem eingöngu hafa skráð skuldabréf heimilt að birta ekki uppgjör í Kauphöll að því gefnu að lágmarksfjárhæð hvers skuldabréfs sé a.m.k. 50.000 EUR að nafnvirði á útgáfudegi bréfanna.

Þá kemur fram að ársreikningar Atorku verða lagðir fyrir á aðalfundi félagsins.