Atorka Group hefur bætt við hlut sinn í Romag og á eftir kaupin um 16% eignarhlut, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Kaupverð viðbótarhlutarins er um 235 milljónir króna og nemur heildar markaðverðmæti eignarhlutar Atorku tæpum 2 milljörðum króna.

Romag er leiðandi framleiðandi á heimsvísu á sérhæfðum glerlausnum sem nýta birtu til rafmagnsframleiðslu (e. photovoltaic glass) en mikill vöxtur er á þeim markaði.

Velta Romag á þessum lausnum óx um 300% á síðasta ári. Félagið er einnig leiðandi í framleiðslu á skotheldu öryggisgleri fyrir byggingar og farartæki. Kaupin voru fjármögnuð með handbæru fé.

Romag er skráð á AIM markaðinn í London.