Atorka Group hf. hefur farið fram á það við Kauphöll Íslands að skráð hlutabréf í Atorku verði tekin úr viðskiptum.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Til grundvallar þeirri beiðni er einkum vísað til tveggja atriða samkvæmt tilkynningunni.   Annars vegar er það mat stjórnar Atorku að í ljósi markaðsaðstæðna eru skilyrði fyrir rekstri skipulegs verðbréfamarkaðar á Íslandi naumast fyrir hendi og við þær forsendur geti eðlileg verðmyndun ekki átt sér stað með hlutabréf í félaginu þar sem enn ríki algjör óvissa á markaði.

Hins vegar grundvallast beiðnin á því að stjórn félagins hefur tekið ákvörðun um að leggja það fyrir hluthafafund félagsins að það verði afskráð úr Kauphöllinni.

Boðað verður til hluthafafundar svo fljótt sem samþykktir félagsins leyfa þar sem tillaga þess efnis verður borin fram. Fáist hún samþykkt verður unnið að því að afskrá félagið eins fljótt og unnt er.

„Beiðni stjórnar Atorku er sett fram með hagsmuni hluthafa félagsins og trúverðugleika markaðarins að leiðarljósi,“ segir í tilkynningunni.

„Með vísan til framangreinds þykir stjórn Atorku ófært annað en að óska eftir því að hlutbréf félagsins verði tekin úr viðskiptum.“

Kauphöllin hefur þegar fært bréf félagins á Athugunarlista.