Í dag 6. apríl 2009 er vaxtagjalddagi á skuldabréfaflokkunum ATOR 07 6 og ATOR 07 7 sem gefnir voru út af Atorku Group en hefur ekki verið greiddur.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar en eigendur flokkanna eru aðilar að kyrrstöðusamningi sem rann út þann 31. mars sl.

Eins og kom fram í tilkynningu frá Atorku Group hf. þann 1. apríl er unnið að framlengingu á kyrrstöðusamningi.

Sjá tengdar fréttir hér að neðan.