Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 1% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:40 í 4.216 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu lækkanir einstakra félaga en ekkert félag hefur hækkað í morgun. Athygli vekur að Atorka [ ATOR ] leiðir lækkanir dagsins en félagið birti hálfsársuppgjör í gærkvöldi.

Velta með hlutabréf er tæplega 700 milljónir. Þar af eru tæpar 220 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ], tæpar 190 milljónir með bréf í Glitni [ GLB ] og um 95 milljónir með bréf í Exista [ EXISTA ] en talsvert minni velta er með bréf í öðrum félögum.

Krónan hefur veikst um 0,2% frá því í morgun og er gengisvísitalan nú 159,1 stig.