Atorka Group hefur selt fasteignafélag sitt, Summit, segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands. Kaupverðið er trúnaðarmál.

Áætlaður söluhagnaður af viðskiptunum er um 250 milljónir króna, en endanleg niðurstaða af því ræðst meðal annars af endanlegum framkvæmdakostnaði vegna hluta eignanna.

Summit hafði verið meðhöndlað sem félag til sölu í samstæðureikningi Atorku, segir í tilkynningunni.