Atorka Group [ ATOR ] hefur selt allan hlut sinn í Shanghai Century Acquisition (SHA) sem er skráð á AMEX í New York.

SHA hafði tilkynnt um kaup á Kelun Pharmaceuticals, ört vaxandi samheitalyfjafyrirtæki í Kína, en kaupin gengu til baka þar sem kínversk yfirvöld lögðu ekki blessun sína yfir þau. Alls átti Atorka tæp 24% hlut í SHA sem metinn var á 2,5 milljarða króna, segir greiningardeild Kaupþings.

Atorka hefur horft til fjárfestinga í vaxtargeirum í Asíu og er þannig stærsti hluthafinn í Asia Environment Holding. Félagið, sem er skráð í Kauphöllina í Singapúr, er leiðandi framleiðandi á vatnshreinsilausnum í Kína og vinnur meðal annars að uppbyggingu vatnshreinsistöðva þarlendis.