Á stjórnarfundi Jarðborana sem haldinn var í dag, 27. nóvember 2006, var ákveðið að skerpa áherslur í rekstri Jarðborana hf. og gera breytingar á lagalegu skipulagi félagsins, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Ætlunin er, að framvegis muni Jarðboranir hf og Björgun ehf. verða hliðsett á þann hátt, að þau verði lögð inn í nýtt eignarhaldsfélag, Volcano Holding ehf. Samtímis er félagið endurfjármagnað.

Yfirstjórn Volcano Holding ehf. verður sú sama og er nú hjá Jarðborunum hf. og þetta mun engin áhrif hafa á rekstur samstæðu Jarðborana hf. eins og honum er nú háttað. Stjórnendur Jarðborana telja að þetta nýja skipulag og fjármögnun muni styðja mjög við útrás félagsins og aukin umsvif þess.

Sem liður í þessu, var ákveðið að leggja fram tillögu á hluthafafundi sem haldinn verður þann 30. desember 2006 að skipta félaginu, miðað við 1. október 2006, í þrjú félög á grundvelli 133. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög: Jarðboranir hf. sem mun áfram fara með borrekstur félagsins, sérstakt eignarhaldsfélag um Björgun ehf. og sérstakt eignarhaldsfélag sem mun taka við skuldabréfaflokkum Jarðborana, JRDB 03 1, JRDB 04 1 og JRDB 05 1

Félögin þrjú, sem verða til við skiptinguna, bera eftir hana ábyrgð á nefndum skuldabréfaflokkum eins og nánar er lýst í ákvæði 133. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995. Þar segir m.a. að þátttökufélög í skiptingu beri óskipta ábyrgð á skuldbindingum sem hafa stofnast þegar upplýsingar um skiptingaráætlun eru birtar upp að þeim nettóverðmætum sem koma í hlut viðkomandi félags við skiptingu.

Einnig ákvað stjórn Atorku Group hf í dag að yfirtaka eignarhaldsfélagið sem tekur við skuldabréfaflokkunum og munu þeir því renna inn í Atorku þegar nauðsynlegum ráðstöfunum þar að lútandi hefur verið lokið. Hlutafé Atorku eftir að skuldabréfaflokkarnir hafa verið yfirteknir verður óbreytt. Þetta mun hins vegar gera það að verkum að Atorka mun fá til sín reiðufé sem nemur fjárhæð skuldabréfaflokkanna, en mun eftir að öllum ráðstöfunum er lokið bera ábyrgð á greiðslu þeirra, segir í tilkynningunni.

Í gær voru í tengslum við þetta undirritaðir samningar Volcano Holding ehf við Landsbanka Íslands sem samanstanda af  fimm milljarða króna langtímaláni, einnar milljarða króna rekstrarlánalínu og 3,5 milljarða króna ádráttarlínu til fyrirtækjakaupa, og ætlaðir eru til fjármögnunar á samstæðu félagsins. Félagið hefur þessu til viðbótar um tvo milljarða króna í handbæru fé.

?Með þessum breytingum er Jarðborunum gert kleift að skerpa áherslur á afkomueiningar og styrkja stoðir félagsins enn frekar. Jafnframt eykst fjárhagslegur styrkur félagsins sem nýta má til sóknar á erlendum mörkuðum. Breytingarnar munu ekki hafa áhrif á starfsfólk félaganna,? segir Bent Einarsson forstjóri Jarðborana.

?Þessi aðgerð veitir Atorku svigrúm og sóknarfæri til enn frekari fjárfestinga samhliða því að styrkja fjárhagslegt bolmagn Jarðborana til útrásar,? segir Magnús Jónsson forstjóri Atorku.