Fjárfestingarfélagið Atorka hf. hefur í dag tryggt sér 54% af virku hlutafé í Afli fjárfestingarfélagi hf. sem jafngildir 48,73% af útgefnu hlutafé. Viðskiptin eru gerð með fyrirvara um samþykki hluthafafundar um aukningu hlutafjár í Fjárfestingarfélaginu Atorku sem nota á í skiptum fyrir hlutabréf í Afli fjárfestingarfélagi hf. Samningurinn er um kaup á hlutum í Afli fjárfestingarfélagi hf. á genginu 2,5 í skiptum fyrir hlutabréf í Fjárfestingarfélaginu Atorku á genginu 4,25.

Í kjölfar hluthafafundarins munu öðrum hluthöfum Afls fjárfestingarfélags verða gert sambærilegt tilboð. Í lok tilboðsferlisins verður óskað eftir afskráningu á Afli fjárfestingarfélagi úr Kauphöll Íslands.