Reginn er enn sem komið er eini staðfesti leigjandinn í Norðurturninum við Smá­ralind, en fasteignafélagið leigir tvær neðstu hæðirnar í húsinu. „Framkvæmdir ganga nokkurn veginn samkvæmt áætlun og við áætlum að verða langt komnir um áramótin. Við erum síðan bara að vinna í að finna leigutaka og látum væntanlega vita af því þegar það kemur. Það er ekkert í hendi,“ segir Ríkharð Ottó Ríkharðsson, framkvæmdastjóri Nýja Norðurturnsins hf.

Framkvæmdir við Norðurturninn hafa staðið yfir síðan árið 2007. Þó var langt hlé á framkvæmdum á árunum 2008 til 2013. Til umræðu hefur verið að Kópavogsbær leigi hluta Norðurturnsins undir bæjarskrifstofur. Spurður um það mál segir Ríkharð að boltinn sé nú hjá Kópavogsbæ.