YouTube stjörnur eru að verða meira eins og Hollywood stjörnur, með milljónir aðdáenda og háar tekjur. AdAge birti nýlega lista yfir YouTube stjörnur eftir mánaðarlegum tekjum þeirra. YouTube stöðin með hæstu tekjurnar í flokki matar og eldamennsku er CharlisCraftyKitchen , þar sem átta ára stúlka að nafni Charli gefur bökunarráð. Charli er með mánaðarlegar auglýsingartekjur upp á 127.777 Bandaríkjadali, eða rúmar 17 milljónir íslenskra króna, eftir að YouTube er búinn að fá sinn hlut. Um það bil 29 milljónir gesta sækja stöðina í hverjum mánuði.

Charli hóf að gera myndbönd árið 2012 þegar hún var sex ára, en fimm ára systir hennar Ashlee birtist oft í myndböndunum sem smakkari. Stelpurnar hafa meðal annars gert kennslumyndbönd fyrir Mínu Músar Oreo pops og hlaupfrostpinna í anda Frozen.

Hér fyrir neðan má sjá myndband af þeim systrum að gera Frozen frostpinna: