Skip þeirra átta útgerða sem skiluðu mestu aflaverðmæti á liðnu ári veiddu fyrir samtals rúmlega 73 milljarða króna. Það er 11,5% meira en árið 2014 þegar aflaverðmæti sömu útgerða nam tæplega 66 milljörðum króna.

Mismunurinn var um 7,5 milljarðar króna sem stafar að stórum hluta af mun meiri loðnuafla en árið á undan.

Eins og áður skiluðu skip HB Granda langmestu aflaverðmæti einstakra útgerða eða 16,7 milljörðum króna. Samherji varð í öðru sæti með 12,7 milljarða í aflaverðmæti, Síldarvinnslan þriðja í röðinni með 10,6 milljarða og Brim í fjórða sæti með 10 milljarða.

Fiskifréttir segja frá þessu - en sjá má ítarlega úttekt á afla og aflaverðmæti skipa átta efstu útgerðanna í nýjustu Fiskifréttum, sem fylgir með Viðskiptablaðinu.