Hagnaður N1 á fyrstu níu mánuðum ársins nemur 794 milljónum króna. Þetta kemur fram í uppgjöri sem er kynnt núna klukkan þrjú í höfuðstöðvum N1 á Dalvegi.

Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir 1.727 milljónir króna eftir fyrstu 9 mánuði ársins og áætlaður um 2.200 -2.300 milljónir króna á öllu árinu.

Eiginfjárhlutfall fyrirtækisins er 51,8% og hreinar vaxtaberandi skuldir 485 milljónir króna.