Útflutningsráð Íslands undirbýr nú þátttöku íslenskra fyrirtækja í sýningunni World Future Energy Summit sem haldin verður dagana 19.-21. janúar í Abu Dhabi.

Sýningin er haldin í tengslum við samnefnda ráðstefnu. Alls hafa átta íslensk fyrirtæki skráð sig til þátttöku á sýningarbásnum.