Heildarvelta á fasteignamarkaði nam 8.177 milljónum króna frá 4. september til 10. september. Þetta kemur fram í markaðsfréttum Þjóðskrár Íslands.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga var 162, en þar af voru 122 samningar um eignir í fjölbýli, 30 samningar um sérbýli og 10 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði.

Meðalupphæð á hvern samning var 50,5 milljónir króna.