Vilhjálmur Bjarnason, aðjúnkt við viðskiptaskor Háskóla Íslands og hluthafi í FL Group, bar fram átta spurningar á aðalfundi FL Group í dag. Að svo búnu, sagðist hann gera sér grein fyrir því að það sé erfitt svara þeim öllum á fundinum. Fundarstjóri benti á að hlutafélagalög kveða á um að stjórnir fái allt að tvær vikur til svara skriflega spurningum á aðalfundi.
Jón Ásgeir Jónsson, stjórnarformaður FL Group, tók undir lokaorð Vilhjálms, sagði erfitt að svara öllum spurningunum á fundinum en ætlaði að reyna það eftir fremsta megni.
Vilhjálmur spurði hve mikið FL Group hefur tapað á stöðum í sex félögum: AMR, Finnair, Royal Unibew, Bang &Olufsen, Commerzbank og Aktiv Kapital.
Jón Ásgeir sagði að það hafi komið fram í ræðu Jón Sigurðssonar, forstjóra FL Group, að félagið hafi tapað 38 milljörðum króna á stöðum í AMR, Finnair og Commerzbank. Hann sagði að ekki mætti gleyma því að rætur FL Group væru í rekstri flugfélaga og fjárfestingafélagið hafi í gegnum tíðina hagnast vel á slíkum fjárfestingum, líkt og í easyJet og Icelandair. Fjárfestingafélagið hefur því talsverða þekkingu á þessum rekstri. En gríðarleg hækkun á eldsneytisverði olli miklum lækkunum á gengi flugfélaga.
Vilhjálmur spurði um afkomu óskráðra hlutdeildafélaga í eigu FL Group: Refresco, Eikarhald, Geysir Green Energy, Northern Travel Holding, og félaga í eigu Northern Travel Holding; flugfélögin Sterling og Iceland Express.
Jón Ásgeir sagðist kannski geta upplýst ítarlega um umgang óskráðu eignina í skriflegu svari. Hann sagði að Refresco hafi gengið vel á síðasta ári, það hafi staðið í yfirtökum og EBITDA félagsins væri nærri áætlun.
Jón Ásgeir sagði FL Group hafi hagnast vel á að fjárfesta í Geysir Green Energy; reiknast til að arðsemin sé um 30%.
Jón Ásgeir segir að rekstur Sterling og Iceland Express standi ágætlega undir kaupverði og hefur mikla trú á rekstri þeirra. Sterling var að komast á núllpunkt á síðasta ári, eftir að hafa verið í miklum taprekstri. Jón Ásgeir benti á að Sterling er með sterka markaðsstöðu á Norðurlöndunum.
FL Group stefndi að því yfirtaka breska félagið Inspired Gaming Group en hætti við í ljósi erfiðra markaðsaðstæðna og breyttra áhersla fjárfestingafélagsins. Vilhjálmur spurði hve mikið sú vinna hafi kostað FL Group og hverjum var greitt fyrir.
Jón Ásgeir sagði það væri hægt að svara þessari spurningu skriflega.
Vilhjálmur spurði hvort það væri rétt sem hann hafði heyrt, að Sigurður Helgason, fyrrverandi forstjóri Icelandair, hafi fengið þrjú þúsund dollara á dag í dagpeninga fyrir það að sitja stjórnarfundi hjá Finnair, sem FL Group var hluthafi í.
Jón Ásgeir sagðist ekki geta gefið upp kjör einstakra starfsmanna.
Vilhjálmur spurði hve mikið Jóni Þór Sigurðssyni eða félögum honum tengdum hafi verið greitt og fyrir hvaða þjónustu.
Jón Ásgeir sagðist skyldi athuga það.
Vilhjálmur spurði fyrir hvaða þjónustu FL Group væri að greiða félagi í eigu Hannesar Smárasonar, fyrrverandi forstjóra félagsins, og hve mikið. Jafnframt spurði hann um nafn á félaginu.
Jón Ásgeir upplýsti að FL Group hafi keypt flugþjónustu af félagi í eigu Hannesar Smárasonar, en það hafi átt einkaþotu. Jón Ásgeir sagði að viðskipti við Hannes hafi numið um 90 milljónum króna á síðasta ári.
Vilhjálmur spurði hve há var skuld Þorsteins M. Jónssonar, stjórnarmanns í FL Group, og Materia Invest, félag sem hann meðal annars á hlut í, við FL Group um áramótin.
Jón Ásgeir svaraði 73 milljónir króna.
Vilhjálmur spurði um kostnað vegna flugferða starfsmanna og stjórnarmanna FL Group árið 2007.
Jón Áseir sagði að það væri hægt að taka það saman og svara skriflega.
Áður en Jón Ásgeir steig úr pontu sagði hann að stjórnendur FL Group hafi ekkert að fela. Fjárfestingarfélagið var endurskoðað af KPMG, virtasta endurskoðendafyrirtæki í heimi. KPMG hafa skrifað undir reikningana snurðulaust.
Vilhjálmur hefur látið að sér kveða á fleiri hlutahafafundum í ár. Á aðalfundi Spron lagði hann fram breytingartillögu þess efnis að lækka laun stjórnarmanna um helming, sem var samþykkt. Auk þess lagði hann fram spurningar á aðalfundi Glitnis.