Átta starfsmenn hjá Glitni ljúka störfum núna i janúar og í febrúar. Þar af er einn starfsmaður í Lundúnum.

Kristján Óskarsson, framkvæmdastjóri Glitnis, segir að ástæða starfslokanna sé sú að verkefnum í slitameðferðinni fari, eðli málsins samkvæmt, fækkandi og því sé ekki þörf á sama starfsmannafjölda og áður.

Starfsmenn Glitnis eru núna 24 en þeir voru 42 þegar þeir voru flestir.