Átta nýsköpunarteymi af Norðurlandi hafa verið valin til þátttöku í viðskiptahraðalinn Vaxtarrými sem mun hefja göngu sína 4. október næstkomandi. Um er að ræða fyrsta viðskiptahraðalinn sem fer fram á Norðurlandi.

Viðskiptahraðallinn stendur yfir í átta vikum og markmiðið er að hjálpa teymunum að vaxa hratt og á þeirra forsendum. Dagskráin er sérhönnuð með þarfir þátttökuteymanna í huga. Teymin hitta reynslumikla leiðbeinendur, frumkvöðla, fjárfesta og stjórnendur fyrirtækja á Norðurlandi og víða, sitja vinnustofur og fræðslufundi og mynda sterkt tengslanet sín á milli.

Hraðallinn fer að mestu leyti fram á netinu en jafnframt hittast teymin fjórum sinnum meðan á hraðlinum stendur á vinnustofum á völdum stöðum á Norðurlandi.

Þátttakendur eru eftirfarandi:

Mýsköpun
Mýsköpun snýr að tilraunaræktun á smáþörungnum til að þróa og framleiða spirulina duft sem fæðubótarefni.

Plastgarðar
Plastgarðar þróa heyrúllupoka sem hægt er að nota ár eftir ár og skapa þannig hringrásarhagkerfi landbúnaðarplasts.

Íslandsþari
Íslandsþari hyggst nýta jarðhita til að vinna verðmætar afurðir úr stórþara sem vex í miklu magni við Norðurland. Verkefnið byggist á sjálfbærni, fullnýtingu og fullvinnslu hráefnisins í sátt við náttúruna.

Mýsilica
MýSilica  framleiðir hágæða húðvörur úr náttúrulegum kísil ásamt öðrum steinefnum sem fyrirfinnast í nærumhverfinu. Fyrirtækið nýtir auðlindir sem eru í dag ónýttar og skapa þannig verðmæti.

Nægtarbrunnur Náttúrunnar
Nægtarbrunnur náttúrunnar er nýsköpunarfyrirtæki sem hefur það að markmiði að þróa og hefja framleiðslu nýrra drykkjarvara úr staðbundnu hráefni, til dæmis grasöl og rabarbarafreyðivín.

Icelandic Eider
Icelandic Eider sérhæfir sig í fullvinnslu æðardúns og þróun á útivistarvörum. Um er að ræða sjálfbærar vörur þar sem dúnninn fellur til af villtum fuglum og til hreinsunar er notast við jarðvarma af svæðinu.

Austan Vatna
Austan Vatna framleiðir Chimicurri sósur og fullvinnur kjötafurðir. Notast er við staðbundin hráefni og lögð áhersla á mikilvægi samspils náttúru og dýra.

Ektafiskur
Ektafiskur framleiðir næringarríkan saltstein fyrir búfé úr afsalti sem fellur til við söltun á fiski.

Vaxtarrými er fyrsta verkefni nýstofnaðra regnhlífasamtaka nýsköpunar á Norðurlandi sem heita Norðanátt. Að samtökunum koma SSNV, SSNE, Eimur, Nýsköpun í norðri, Hraðið og RATA. Stuðningsaðili Vaxtarrýmis er Fallorka.