Fimmtán einstaklingar sóttu um stöðu seðlabankastjóra og sextán um stöðu aðstoðarseðlabankastjóra en með umsóknarfrestur rann út þann 31. mars sl.

Eins og kunnugt er auglýsti forsætisráðuneytið embætti seðlabankastjóra og aðstoðarseðlabankastjóra laus til umsóknar í samræmi við ný lög um Seðlabanka Íslands í byrjun mars.

Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu kemur fram að sérstök matsnefnd verður skipuð til að meta hæfni umsækjenda um stöðurnar í samræmi við ákvæði laganna. Ráðgert er að skipað verði í stöðurnar í maí nk.

Umsækjendur um embætti seðlabankastjóra sem uppfylla lágmarksmenntunarskilyrði laganna um háskólapróf eru eftirfarandi:

  1. Arnór Sighvatsson, hagfræðingur.
  2. Ásgeir Jónsson, hagfræðingur.
  3. Jóhann Rúnar Björgvinsson, hagfræðingur.
  4. Már Guðmundsson, hagfræðingur.
  5. Rannveig Sigurðardóttir, hagfræðingur.
  6. Tryggvi Pálsson, hagfræðingur.
  7. Yngvi Örn Kristinsson, hagfræðingur.
  8. Þorvaldur Gylfason, hagfræðingur.

Umsækjendur um embætti aðstoðarseðlabankastjóra eru eftirfarandi:

  1. Arnór Sighvatsson, hagfræðingur.
  2. Baldur Pétursson, viðskiptafræðingur.
  3. Daníel Svavarsson, hagfræðingur.
  4. Halldór Eiríkur S. Jónhildarson, þjóðréttar- og lögfræðingur.
  5. Haukur Camillus Benediktsson, hagfræðingur.
  6. Jóhann Rúnar Björgvinsson, hagfræðingur.
  7. Jón G. Jónsson, viðskiptafræðingur.
  8. Jón Þ. Sigurgeirsson, viðskiptafræðingur.
  9. Lilja D. Alfreðsdóttir, hagfræðingur.
  10. Lúðvík Elíasson, hagfræðingur.
  11. Ólafur Þórisson, hagfræðingur.
  12. Rannveig Sigurðardóttir, hagfræðingur.
  13. Tamara Lísa Roesel, viðskiptafræðingur
  14. Tryggvi Pálsson, hagfræðingur
  15. Yngvi Örn Kristinsson, hagfræðingur.
  16. Þorsteinn Þorgeirsson, hagfræðingur