Átta manns sóttu um tvö embætti dómara við Landsrétt. Dómsmálaráðuneytið auglýsti starfið 20. desember, en umsóknarfrestur rann út 6. janúar. Sett verður í embættin hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni umsækjenda um dómaraembætti hefur lokið störfum. Greint er frá málinu á vef stjórnarráðsins.

Umsækjendur um embættið eru:

  1. Ása Ólafsdóttir, prófessor
  2. Ástráður Haraldsson, héraðsdómari
  3. Björn L. Bergsson, skrifstofustjóri Landsréttar
  4. Bogi Hjálmtýsson, héraðsdómari
  5. Hildur Briem, héraðsdómari
  6. Ingibjörg Þorsteinsdóttir, héraðsdómari
  7. Ragnheiður Snorradóttir, héraðsdómari
  8. Sandra Baldvinsdóttir, héraðsdómari