Flestir starfsmanna Fossa markaða koma frá Straumi fjárfestingabanka sem sameinaðist MP banka formlega í síðustu viku. Fjöldi starfsmanna Straums hefur sagt starfi sínu lausu frá því að tilkynnt var um sameiningu bankanna en nú síðast tilkynnti Jakob Ásmundsson, forstjóri Straums, að hann myndi hætta þegar nýr banki yrði sameinaður. Spurður hvað hafi valdið því að hann og fleiri starfsmenn fyrirtækisins hafi sagt upp störfum segir Haraldur að ástæðurnar hafi að mestu verið einstaklingsbundnar.
„Þetta gerðist ekki allt yfir eina nótt,“ segir hann. „Í hreinskilni sagt þá er það þannig að það urðu breyttar áherslur hjá Straumi og stefnan sett á víðtækari starfsemi, m.a. eignastýringu. Sú stefna var undirstrikuð þegar Straumur yfirtók Íslensk verðbréf og hóf samrunaferli við MP banka. Þetta opnaði fyrir möguleikann á hagsmunaárekstrum gagnvart viðskiptavinum. Það var í raun og veru það sem fékk mann yfir línuna, frekar en annað.
Þetta undirstrikar það að það er eftirspurn fyrir mjög færa aðila sem eru ekki með stöðutöku í eigin bók, í persónulegri stöðutöku, eru samkeppnisaðilar eða eitthvað annað sem gefur tilefni til hagsmunaárekstra. Að vel ígrunduðu máli tóku ég og kollegi minn af skarið. Að vissu leyti finnst mér það sem er að gerast á mínum gamla vinnustað vera gott fyrir markaðinn. Þetta er ákveðin stefna sem hentar sumum og annað hentar öðrum. Öllum breytingum fylgja tækifæri og þarna var eitthvað sem höfðaði til mín.“
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast pdf-útgáfu af blaðinu með því að smella á hlekkinn Tölublöð .