Stjórn og stjórnendum Íslenskrar afþreyingar, sem áður hét 365 hf., bar að óska eftir því að félagið yrði tekið til gjaldþrotaskipta mun fyrr en gert var. Hafi þeir því brotið gegn ákvæðum gjaldþrotalaga og valdið kröfuhöfum umtalsverðu tjóni. Er þetta niðurstaða mats dómskvaddra matsmanna, sem unnið var í tengslum við skaðabótamál Landsvaka hf. gegn fyrrum stjórnarmönnum Íslenskrar afþreyingar, þeim Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Pálma Haraldssyni, Magnúsi Ármann og Þorsteini M. Jónssyni. Málið er höfðað vegna sölu á fjölmiðlahluta Íslenskrar afþreyingar til Rauðsólar árið 2008. Í niðurstöðu matsins segir að félagið hafi verið ógjaldfært bæði fyrir og eftir söluna og í raun ekki verið rekstrarhæft. Því hafi stjórn félagsins borið, lögum samkvæmt, að gefa félagið upp til gjaldþrotaskipta.

Nánar um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir liðnum Tölublöð hér að ofan.