Gert er ráð fyrir að eingreiðsla vegna desemberuppbótar til atvinnuleitenda auki útgjöld Atvinnuleysistryggingasjóðs um tæpar 280 milljónir króna í desember.

Þetta kemur fram á vef Vinnumálastofnunar en ríkisstjórnin samþykkti í gærmorgun tillögu Guðbjarts Hannessonar, félags- og tryggingamálaráðherra, þess efnis að atvinnuleitendur sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins fá eingreiðslu í desember.

Full uppbót er 44.857 krónur en greiðsla hvers og eins reiknast í hlutfalli við rétt hans til atvinnuleysisbóta árið 2010.

Uppbótin verður greidd þeim sem hafa staðfest atvinnuleit á tímabilinu 20. nóvember–5. desember á þessu ári og ræðst heildarfjárhæðin af fjölda daga sem viðkomandi hefur verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun.

Fram kemur að þeir sem hafa verið skráðir án atvinnu í samtals tíu mánuði árið 2010 og eru að fullu tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins fá óskerta eingreiðslu, samtals 44.857 krónur. Þeir sem hafa ekki verið tryggðir að fullu, heldur hlutfallslega innan atvinnuleysisbótakerfisins, fá greidda eingreiðslu í samræmi við tryggingarhlutfall sitt. Sama máli gegnir um þá sem eru að fullu tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins en hafa aðeins verið hluta ársins án atvinnu.

Eingreiðsla miðað við óskert tryggingarhlutfall verður aldrei lægri en 11.214 krónur og getur eingreiðsla miðað við skert tryggingarhlutfall að lágmarki numið fjórðungi þeirrar fjárhæðar.