Skráð atvinnuleysi í desember 2007 var 0,8% eða að meðaltali 1.357 manns, sem eru 36 fleiri en í nóvember sl. eða 2,6% aukning.  Atvinnuleysi er um 28% minna en á sama tíma fyrir ári þegar það var 1,2%. Atvinnuleysi stendur í stað á höfuðborgarsvæðinu þar sem það er nú 0,6% líkt og í nóvember, og er einnig óbreytt á landsbyggðinni eða 1,2%. Þetta kemur fram á vef Vinnumálastofnunnar.

Lítils háttar aukning er í atvinnuleysi karla á landsbyggðinni. Atvinnuleysi kvenna minnkar lítils háttar en mælist óbreytt eða 1,1%. Þeir sem verið hafa á skrá lengur en 6 mánuði voru 465 í lok desember, 463 í lok nóvember en voru yfir 700 í aprílmánuði þegar þeir voru hvað flestir á árinu. Þar af hafa 286 verið atvinnulausir í meira en ár og hefur fjöldi þeirra lítið breyst síðustu mánuði.

Nýskráningar ríkisborgara frá nýjum ríkjum ESB voru 343 í desember sem er mikil fækkun frá nóvember þegar skráningar voru 847 og í október 923. Fjöldi skráninga í desember er þó yfir því sem var að jafnaði á mánuði flesta mánuði ársins. Útgáfa nýrra atvinnuleyfa til ríkisborgara utan EES er orðin mjög lítil, aðeins voru gefin út 74 ný atvinnuleyfi í desember og hafa að jafnaði verið gefin út á bilinu 20 til 80 ný atvinnuleyfi á mánuði á árinu 2007.

Vísbendingar um atvinnuástandið í janúar

Atvinnuástandið versnar yfirleitt milli desember og janúar. Í fyrra jókst atvinnuleysið um 5% milli þessara mánaða og var þá 1,2% í desember 2006, og 1,3% í janúar 2007. Lausum störfum hjá Vinnumálastofnun fækkaði um 57 milli nóvember og desember og voru 235 í lok desember. Atvinnulausum í lok desember fjölgaði frá lokum nóvember eða um 79, sem er minni aukning en á sama tíma árið 2006 þegar fjölgaði um 189 milli þessara mánaða. Þegar allt er talið er því líklegt að atvinnuleysið í janúar 2008 muni aukast lítillega og verða á bilinu 0,8%-1,1% segir á vef stofnunarinnar.