Í septembermánuði síðastliðnum voru skráðir 49.897 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 2.267 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þessar tölur jafngilda 1,4% atvinnuleysi, en áætlaður mannafli á vinnumarkaði skv. áætlun Efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis í september 2005 er 156.683.