Í júlímánuði síðastliðnum voru skráðir 65.837 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 3.135 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þessar tölur jafngilda 2% atvinnuleysi, en áætlaður mannafli á vinnumarkaði skv. áætlun Efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis í júlí 2005 er 156.683.

Í frétt frá Vinnumálastofnunkemur fram að meðalfjöldi atvinnulausra var 3,3% minni í júlí en í júní sl. eða að meðaltali 107 færri en í júní og 1.577 færri en í júlí árið 2004 sem er um 33% fækkun frá júlí 2004. Fækkunin ermun meiri meðal karla en kvenna.