Á þriðja ársfjórðungi 2018 voru að jafnaði 206.700 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði. Af þeim voru 202.200 starfandi og 4.500 án vinnu og í atvinnuleit. Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofunna r. Atvinnuþátttaka var 82,4%, hlutfall starfandi 80,6% en atvinnuleysi 2,2%.

Atvinnulausar konur voru 2.200 og var atvinnuleysi á meðal kvenna 2,3%. Atvinnulausir karlar voru 2.300 eða 2,0%. Atvinnuleysi var 2,5% á höfuðborgarsvæðinu og 1,5% utan þess.

Samanborið við þriðja ársfjórðung 2017 fjölgaði starfandi fólki um 7.900 og hlutfall starfandi af mannfjölda jókst um 0,4 prósentustig. Fjöldi atvinnulausra jókst lítillega á milli ára eða rétt um 200 manns en hlutfall þeirra af vinnuafli stóð í stað.