Á fjórða ársfjórðungi 2006 voru að meðaltali 4.300 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 2,5% vinnuaflsins, segir í tilkynningu Hagstofu Íslands.

Atvinnuleysi mældist 2,5% bæði hjá körlum og konum. Þegar litið er til aldurs var atvinnuleysið mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára, eða 7,0%.

Á fjórða ársfjórðungi 2005 mældist atvinnuleysi 2,7%. Atvinnuleysi karla var þá 3,0% en 2,2% hjá konum. Atvinnuleysi var mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára eða 7,9%.

Atvinnulausir teljast þeir sem ekki hafa atvinnu í viðmiðunarviku könnunarinnar, eru að leita að vinnu og geta hafið störf innan tveggja vikna eða hafa fengið vinnu sem hefst innan þriggja mánaða.

44,7% atvinnulausra höfðu leitað að vinnu í innan við einn mánuð og 19,8% höfðu fengið vinnu sem hefst síðar
Af þeim sem voru atvinnulausir á fjórða ársfjórðungi 2006 voru 900 búnir að finna vinnu sem hefst síðar, eða 19,8%, 1.900 manns eða 44,7% voru búnir að leita skemur en einn mánuð að vinnu og 600 manns, eða 14,9% voru búnir að leita lengur en sex mánuði.

Fjöldi starfandi á fjórða ársfjórðungi 2006 var 169.900 manns og fjölgaði um 8.400 frá sama tíma ári áður. Starfandi í fullu starfi voru 129.100 og hafði þeim fjölgað um 10.100 frá fjórða ársfjórðungi 2005 en í hlutastarfi voru 40.800 og hafði þeim fækkað um 1.600. Fólk telst vera starfandi ef það hefur unnið eina klukkustund eða meira í viðmiðunarviku könnunar eða verið fjarverandi frá starfi sem það gegnir að öllu jöfnu.

Á vinnumarkaði voru alls 174.300 manns sem jafngildir 82,1% atvinnuþátttöku. Atvinnuþátttaka karla var 86,8% en kvenna 77,0%. Til þeirra sem eru á vinnumarkaði teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir.

Á fjórða ársfjórðungi 2005 mældist atvinnuþátttaka 81,3%. Hjá körlum var atvinnuþátttaka 85,1% en 77,4% hjá konum. Fólki á vinnumarkaði fjölgaði um 8.400 manns frá fjórða fjórðungi fyrra árs til jafnlengdar á þessu ári, mest í aldurshópnum 25-54 ára eða um 7.300 manns.

Á fjórða ársfjórðungi 2006 var meðalfjöldi vinnustunda 42,2 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 48,0 klst. hjá körlum en 35,1 klst. hjá konum. Meðalfjöldi vinnustunda hjá þeim sem voru í fullu starfi var 47,8 klst. en 23,8 klst. hjá þeim sem voru í hlutastarfi.

Á fjórða ársfjórðungi 2005 var fjöldi vinnustunda 41,6 klst., 47,3 klst. hjá körlum en 34,9 klst. hjá konum. Þeir sem voru í fullu starfi unnu 47,6 klst. að jafnaði en þeir sem voru í hlutastarfi unnu 23,9 klst.