Atvinnuleysi á þriðja ársfjórðungi mældist 2,6%, en atvinnulausum hefur fækkað um 1.500 manns frá því á sama tíma í fyrra og hlutfall atvinnulausra hefur lækkað um 0,9 prósentustig. Þetta kemur fram í tölum frá Hagstofunni .

Ef horft er á atvinnuleysið eftir kynjum þá er það 2,9% meðal kvenna, en atvinnulausar konur voru 2.700 en atvinnuleysi karla mældist 2,3% og voru 2.500 þeirra atvinnulausir. Á höfuðborgarsvæðinu var atvinnuleysið 3% meðan það var 1,9% utan þess.